SKAFT.
Pútt

Bestu púttæfingarnar

5 æfingar sem fækka púttunum · 5 mín lestur

Púttin hafa meiri áhrif á skorið en margir gera sér grein fyrir.

Kylfingar með um 25 í forgjöf eru með tæplega 6 þrí-pútt á hring, en kylfingar sem skora undir 80 eru nær 2–3 þrí-púttum. Ein besta leiðin til að lækka skorið er því að bæta lengdarstjórnun og stuttu púttin.

Hér eru fimm einfaldar æfingar sem þú getur gert á æfingagríni eða heima á púttmottu.

1. Hliðið

Settu tvö tí rétt breiðari en kúlan um 30 cm fyrir framan boltann.

Markmiðið er að boltinn fari í gegnum hliðið án þess að snerta tíin.

Þessi æfing bætir byrjunarlínu boltans, einn mikilvægasta þátt góðs pútts.

2. Klukkan

Settu sex bolta í hring um einn metra frá holunni.

Settu alla niður í röð.

Ef þú missir byrjarðu aftur.

Þetta byggir upp sjálfstraust á stuttu púttunum og þjálfar þig í að endurtaka sömu hreyfinguna undir pressu.

3. Pútt stiginn

Stilltu þér upp og merktu punkta 5, 7, 9 og 11 metra frá þér.

Púttaðu fyrsta boltanum sem næst 5m punktinum, svo að næsta og svo koll af kolli.

Markmiðið er ekki endilega að setja púttið ofaní, heldur að stjórna hraðanum og koma boltanum nálægt.

Flest þrí-pútt byrja á lélegri lengdarstjórnun.

4. Leiðin heim

Veldu langt pútt.

Reyndu að stoppa boltann innan eins metra frá holunni.

Ekki reyna að klára að pútta ofaní.

Betri lengdarstjórnun dregur verulega úr líkum á þrí-pútti.

5. Umhverfis heiminn

Settu bolta í 1 m, 1,5 m og 2 m í spíral í kringum holuna.

Þú verður að setja niður á hverri stöð til að komast á næstu. Ef þú klikkar ferð þú til baka um eina stöð.

Þessi æfing bætir bæði sjálfstraust og getu til að pútta undir pressu.

Gerðu æfingarnar mælanlegar

Í stað þess að pútta bara skaltu skrá:

Þá sérðu hvort þú ert raunverulega að bæta þig.

Í SKAFT. eru þessar æfingar tilbúnar með skori sem þú skráir svo þú getir fylgst með þróuninni yfir tíma.

Niðurstaða

Þú þarft ekki fullkomið æfingagrín til að verða betri púttari.

Nokkrar mínútur af markvissri æfingu nokkrum sinnum í viku skila yfirleitt meiri framförum en að pútta án skýrs markmiðs.

Æfðu púttin með skori í SKAFT.

Tilbúnar púttæfingar, skor á hverja lotu og skýr mynd af framförunum.

Skoða SKAFT.